Núna er komið að fyrsta blogginu mínu
eftir að ég kem út.
Ég er ekki búinn að gera mikið síðan
ég kom “heim”
Mið: Kom hingað um 2 leytið og horfi á
leikina á og svaf
Fim: Píptest og lyftingar síðan farið
heim og horft á leikina og sofið
Föst: Spretthlaups próf og síðan bara
farið heim í langa helgi og eins og áður horft á leikina og kíkt
aðeins í golf
Laug: Ég, Eggert og Hjálmar fórum í
tennis síðan í sund síðan var haldið heim og horft á leikina og
kvöldinu eytt hjá Eggerti þar sem ekki mikið var gert.
Sun: Sofið út og horft á sjónvarpið
og leikina til skiptis þar sem að var mjög viðburðarríkur leikurinn
á milli Portúgals og Hollands eða 4 rauð spjöld en bara eitt mark.

Mán:Frekar erfiður dagur tvöföld
æfing í frekar miklum hita! Þetta sumar endar í hrikalegri
bóndabrúnku!
Eins og þið sjáið þið sem eruð enn að
lesa þessa hörmung þá er ekki mikið að gerast hérna alla veganna strax á meðan
undirbúnings tímabilið er og HM.
Síðan held ég að ég komi ekki heim
fyrr en um jólin sem gerir dagana enn þyngri og frekar
súra! Það eru
allir velkomnir í heimsókn ég er með eitt aukarúm.. 
En maður lítur á björtu hliðarnar og
reynir að njóta lífsins til botns það er ekki annað hægt þegar
maður er hérna
Brandarann að þessu sinni eiga
kaffibrúsakarlarnir: Þú keyrðir á feitu kerlinguna! Af hverju
beygðirðu ekki í fram hjá henni???
Svar: Ég átti ekki nóg
bensín!
Hér koma nokkrar myndir

Veit ekki alveg en
þessi líta út fyrir að vera öfugir

Hjalti??

Grímur

En alla veganna
Þangað til næst!
Halli B